Virkun Ceramizer - Efnaferill fyrir endurnýjun hreyfilsins, gírkassa og annarra tækja

Virkun Ceramizer

Ceramizer er núningavirkt bætiefni sem ætlað er að bæta ástand snertiflata þar sem málmur vinnur á móti málmi; í vél, gírkassa eða vökvastýri.

Notkun

Efninu er bætt út í heita olíu (vél, gírkassa eða vökvastýri), eða í eldsneytið þegar um eldsneytisbæti er að ræða. Ferlið fer fram við venjulegan gang vélarinnar og krefst engra frekari aðgerða. Einn skammtur er 4 g.

Hvernig efnið á að virka

Samkvæmt framleiðanda byggir virkni Ceramizer á valvísum flutningi (e. selective transfer);  núningafræðilegu fyrirbæri þar sem efni flyst milli snertiflata og myndar þunnt, aðlögunarhæft núningalag í stað þess að tapast sem slit.

Agnirnar í efninu hafa mikla viðloðun við málm. Framleiðandi lýsir ferlinu svo: agnirnar safnast fyrir þar sem núningur og staðbundinn hiti er mestur, bindast málmögnum sem þegar eru í olíunni vegna eðlilegs slits, og mynda þar þunnt keramik-málmlag. Lagið fyllir upp í örskemmdir og ójöfnur á snertifletinum. Þegar lagið hefur náð fullri þykkt stöðvast ferlið af sjálfu sér.

Markmiðið er að bæta ástand slitflatanna; ekki að endurheimta upprunalega rúmfræði vélarhluta. Núningalag af þessu tagi er örfáir míkrómetrar að þykkt.

Uppgefnir eiginleikar

Eftirfarandi tölur eru mælingar framleiðanda:

  • Núningsstuðull: 0,02
  • Harka lagsins: 4000–4500 MPa
  • Þrýstiþol: 2500 MPa

Samkvæmt framleiðanda helst lagið eftir olíuskipti.

Hvað Ceramizer gerir ekki

  • Inniheldur hvorki teflon, blý né mólýbden.
  • Er ekki olíuþykkir.
  • Stíflar hvorki olíusíur né olíurásir: agnirnar eru allt að 2 míkrómetrar en op í olíusíu vélarinnar eru yfir 5 míkrómetrar. Auk þess myndast lagið eingöngu þar sem málmur vinnur á móti málmi, ekki í rásum eða síum.
  • Kemur ekki í veg fyrir olíueyðslu gegnum ventlaþéttingar, enda er þar ekki um málm á móti málmi að ræða.

Um fræðilegan grunn

Valvís flutningur er staðfest fyrirbæri innan núningafræði og á sér áratugalanga rannsóknasögu.

Nánari umfjöllun um núningafræðina sjálfa, byggð á ritrýndum heimildum: Samantekt um Núningsfræði

Fyrri færsla
Hvaðan kemur Ceramizer?