Hvaðan kemur Ceramizer? - Efnaferill fyrir endurnýjun hreyfilsins, gírkassa og annarra tækja

Hvaðan kemur Ceramizer?

Prófessor D.N. Garkunov og rannsóknarteymi hans (G.P. Shepenkov, W.J. Matioshenko, A.A. Polijakow) framkvæmdu fjölda prófana og uppgötvuðu fyrirbærið valvís flutningur (e. Selective Transfer) þar sem við ákveðnar réttar aðstæður geta agnir flust yfir á „virkt“ yfirborð og búið til verndarlag. Þetta kallast Garkunov-áhrif. Telst þetta undir núningsfræði (e. tribology). Þessi uppgötvun hlaut gullverðlaun hjá Bresku stofnun vélfræðinga og verkfræði árið 2005 (e. Institution of Mechanical Engineers (IMechE). Hér má sjá umfjöllun á vefsíðu bresku stofnuninnar.

Hugmyndin um  hefur síðan verið prófuð víða og aðlöguð til notkunar í bíla- og hergagnaiðnaði, sérstaklega hjá flughersveitum Austur-Evrópu samkvæmt framleiðenda.

Ceramizer® byggir á sömu tækni sem Garkunov vann að. Efnið endurbyggir og endurnýjar slitna fleti með því að þekja þá með keramík-málmhúð. Ceramizer® inniheldur örsmáar agnir af sérþróuðu efni og býr til kjöraðstæður fyrir valvís flutningur. Þessar agnir bindast málmögnum sem eru til staðar í vélarolíunni og koma frá eðlilegu sliti. Þessar agnir bindast síðan við málm sem verður fyrir núningi. Slitið yfirborð er því í raun endurbyggt með mjög hörðu hlífðarlagi úr keramík- og málmögnum. Samkvæmt framleiðanda er þessi húð mjög endingargóð og endist í þúsundir kílómetra jafnvel eftir olíuskipti.

Fyrirbærið valvís flutningur er staðfest í fræðunum; hvort tiltekin útfærsla nái því fram veltur á aðstæðum.

Til að lesa um fræðina sem slíka byggt á ritrýntum greinum, þá má lesa í Samantekt um Núningsfræði

Fyrri færsla
Mótor & Sport blað
Næsta póstur
Virkun Ceramizer